Hoppa yfir valmynd
3. maí 2024 Utanríkisráðuneytið

Sendiskrifstofa Íslands í Síerra Leóne formlega opnuð

Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne, skáru tertu með þjóðfánum beggja ríkja við opnunina.  - myndTj Bade

Ný sendiskrifstofa Íslands í Freetown, höfuðborg Síerra Leóne, var formlega opnuð í gærkvöldi og var sérstök hátíðarmóttaka af því tilefni. Sendinefnd frá Íslandi er í Síerra Leóne um þessar mundir og sóttu Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Logi Einarsson þingmaður, opnunina. Timothy M. Kabba, utanríkisráðherra Síerra Leóne, flutti ávarp og þá tóku Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, og Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, einnig til máls.

„Það skiptir máli að nú sé loksins búið að opna sendiskrifstofuna okkar í Freetown formlega en undirbúningur hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Helstu verkefni skrifstofunnar snúa að þróunarsamvinnu og þar með er Síerra Leóne orðið þriðja samstarfsríki Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu, til viðbótar við Malaví og Úganda. Við viljum gera gagn auk þess að dýpka samstarf við Síerra Leóne og opnun sendiskrifstofunnar í Freetown er mikilvægur áfangi á þeirri vegferð,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Samstarf Íslands og Síerra Leóne í þróunarsamvinnu hófst árið 2018. Þá með svæðaverkefni í fiskimálum í Vestur-Afríku, í samstarfi við Alþjóðabankann og stjórnvöld í landinu. Ísland hefur einnig stutt við uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), og bætt kyn- og frjósemisheilbrigði kvenna og stúlkna í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA).

Fyrirætlunum Íslands um aukna þróunarsamvinnu og opnun sendiráðs hefur verið fagnað af stjórnvöldum, sem og öðrum framlagsríkjum. 

Megináhersla í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands er að stuðla að bættum lífskjörum í samstarfsríkjum með því að styðja við áætlanir og viðleitni stjórnvalda við að draga úr fátækt og bæta félagsleg og efnahagsleg lífsskilyrði á þeim svæðum sem Ísland styður. Þróunarsamvinna Íslands í Síerra Leóne er í samræmi við áherslur Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu þar sem lögð er áhersla á uppbyggingu félagslegra innviða, jafnréttismál og mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu.

 
  • Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofunnar, flutti ávarp.  - mynd

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum